Suðurlandsbraut 30, 4. hæð
Sími: 577 5600
info@gjafabref.is
Opið frá 9-15 alla virka daga.
Sumaropnun 9-14 alla virka daga.
Gjafabréf er stafrænt gjafakort sem gildir hjá hundruðum samstarfsaðila um allt land. Þú velur upphæðina og sendir það í síma eða tölvupósti, og viðtakandinn ræður sjálfur hvað hann gerir við það. Eitt gjafabréf, endalausir möguleikar.
Hjá yfir 250 samstarfsaðilum um allt land — veitingastöðum, verslunum, hótelum, afþreyingu og fleiru. Listinn nær yfir allt landið, ekki bara höfuðborgarsvæðið.
Þú finnur alla samstarfsaðila á síðunni Samstarfsaðilar. Listinn uppfærist jafnóðum og nýir bætast við.
Týpurnar eru til þess að gera gjöfina persónulegri — þú velur þá sem passar viðtakandanum. En kortið gildir alltaf hjá öllum samstarfsaðilum, sama hvaða týpa var valin. Viðtakandinn ræður hvar hann notar það.
Á gjafabref.is. Þú velur gjafabréf, slærð inn upphæð og upplýsingar um viðtakandann og klárar kaupin. Það tekur nokkrar mínútur.
Já, þú slærð inn þá upphæð sem þú vilt, allt að 300.000 kr.
Greiðslukort og Netgíró.
Já. Þú getur sent það strax eða valið dagsetningu og tíma — til dæmis á afmælisdaginn sjálfan klukkan níu að morgni.
Þú ræður. Þú getur sent það í SMS, tölvupósti eða hvoru tveggja.
Já, þú skrifar kveðjuna í kaupferlinu og hún fylgir gjafabréfinu.
Já. Þú færð staðfestingu og kvittun í tölvupósti um leið og kaupin ganga í gegn.
Eins og hvert annað kort. Þú opnar kortið í símanum og sýnir starfsmanninum það við afgreiðslu.
Já. Gjafabréfið fer beint í Apple Wallet eða Google Wallet, svo það er alltaf við höndina.
Nei. Gjafabréfið er inneignarkort. Þú notar það eins oft og þú vilt þangað til inneignin klárast.
Já, eins mörgum og þú vilt. Inneignin er ekki bundin við einn stað.
Þú greiðir mismuninn með öðrum hætti.
Ekki eins og er — Gjafabréfið er notað á staðnum hjá samstarfsaðilum. Netnotkun er í vinnslu.
Á síðunni Athuga stöðu slærðu inn kortanúmerið og sérð inneignina. Eins er hægt að sjá stöðuna á kortinu sjálfu í kortaveskinu í símanum.
Í fjögur ár frá kaupdegi.
Nei. Gjafabréfið gildir í fjögur ár og að þeim tíma liðnum er ekki hægt að framlengja það.
Hafðu samband við okkur á info@gjafabref.is með upplýsingum um kaupin og við skoðum hvað við getum gert.
Algengasta skýringin er ein af þremur: sendingin er stillt fram í tímann, netfangið eða símanúmerið var rangt slegið inn, eða tölvupósturinn lenti í ruslpósti. Athugaðu ruslpóstinn fyrst, og ef það dugar ekki skaltu hafa samband við okkur svo við getum fundið sendinguna.
Já. Kaupandinn getur skilað gjafabréfinu innan 14 daga frá kaupum, að því gefnu að það sé ónotað.
Hafðu samband við okkur sem fyrst á info@gjafabref.is og við lagfærum það.
Hafðu samband við okkur á info@gjafabref.is og við skoðum málið með þér.
Ekkert sem bitnar á þér. Inneignin er ekki bundin við einn stað, svo þú velur einfaldlega annan samstarfsaðila af listanum.
Já, og það er einfalt. Ein lausn sem hentar öllum og gildir um allt land, og starfsfólkið velur sjálft hvað það gerir við hana. Þú færð hrósið fyrir að hafa hitt í mark.
Gjafaval er lausn fyrir stærri fyrirtæki. Hver starfsmaður fær innskráningarhlekk á eigin gjafasíðu og velur sjálfur úr sérvöldum gjafabréfum. Þið ákveðið upphæðina og úrvalið, starfsfólkið sér um restina.
Já. Prentuð gjafabréf koma í stílhreinu umslagi, tilbúin til afhendingar. Umbúðir kosta 350 kr. fyrir hvert bréf.
Já. Verðið fer eftir umfangi — hafðu samband og við gerum tilboð.
Nei. Þið kaupið eins mörg eða fá gjafabréf og þið viljið.
Rafræn gjafabréf berast á nokkrum mínútum. Prentuð gjafabréf berast á einum til tveimur virkum dögum.
Sendu okkur línu á info@gjafabref.is eða hringdu í 857 7877. Opið er 9–15 alla virka daga.