Skilmálar

Söluskilmálar www.gjafabref.is

Þessi vefsíða er í eigu Óskaskrín ehf. Með því að kaupa vöru á www.gjafabref.is samþykkir þú eftirfarandi skilmála.

Pöntun

Pöntun þín verður staðfest um leið og greiðsla hefur borist með greiðslukorti á öruggu greiðslusíðunni eða með símgreiðslu. Staðfestingin verður send á það netfang sem viðskiptavinur gefur upp. Tekið er við öllum helstu kreditkortum.

Afgreiðsla

Allar pantanir berast rafrænt með tölvupósti og/eða skilaboðum. Hægt er að kaupa gjafaumslag og sækja til okkar. Einnig er hægt er að senda gjafabréf beint á annan viðtakanda.

Skipti, skil og uppfærslur

Kaupandi getur skipt og valið nýja tegund gjafabréfs gegn greiðslu á mismuninum hafi verð hækkað eða aðrar vörur komið þess í stað.

Kaupandi getur skilað vöru og fengið endurgreitt innan 14 daga frá því varan er keypt á www.gjafabref.is en gjafabréfið þarf að vera ónotað.

Ábyrgð

Sé sú þjónusta eða upplifun sem valin er ekki lengur í boði er Óskaskrín ehf. ekki bótaskylt með neinum hætti. Margir aðrir valmöguleikar eru fyrir hendi í hverjum flokki auk þess sem nýir valmöguleikar birtast á www.gjafabref.is reglulega auk upplýsinga um allar breytingar og upplýsingar um valmöguleika.

Verði viðkomandi fyrir óhappi eða tjóni gildir ábyrgð og skilmálar þjónustuaðilans.

Meðferð perónulegra upplýsinga

Farið er með allar persónulegar upplýsingar sem seljandi móttekur sem algjört trúnaðarmál.

Kaupanda gefst hinsvegar kostur á að fá sendar tilkynningar og tilboð í tölvupósti enda samþykki hann slíkt. Sá sem gjafabréf þiggur að gjöf þarf að skrá inn persónulegar upplýsingar þegar gjafakortið er virkjað og hefur hann jafnframt val um að fá sendar tilkynningar og tilboð á tölvupósti. Hægt er að afþakka þessar tilkynningar og tilboð með því að fara inn á www.gjafabref.is