Fætur Toga

Hjá Fætur Toga starfar reynslumikið fagfólk sem hefur síðastliðin 10 ár tekið yfir 60.000 íslendinga í göngu- og hlaupagreiningu um allt land. Þau vinna náið með íþróttahreyfingunni og fagaðilum í heilbrigðisstétt. Einnig ferðast þau um landið með göngu- og hlaupagreiningar, kynningar og sölu á tengdum vörum.

Í verslunum Fætur Toga, sem eru staðsettar að Höfðabakka 3, 110 Reykjavík og á Heilsuhæð Kringlunnar sér fagfólk um göngugreiningar, fótskoðun, skóráðgjöf, skósölu og sölu fylgihluta. Einnig ráðleggur starfsfólk um hlaupafatnað, íþróttatoppa/brjóstahaldara og mælir með vörum fyrir fætur s.s. tábergspúða, upphækkanir, sérsmíðuð og stöðluð innlegg auk skóbreytinga. Sérhæfing í sölu á gæðavörum og metnaður í góða þjónustu og sanngjörn verð.

Fætur Toga - Hreyfing og Útivist

Kaupa rafrænt
Karfa
Scroll to Top